mánudagur, ágúst 17, 2009

amazzzzon


miðvikudagur, ágúst 13, 2008

Hafðu það aðeins betra!

Námsmannaþjónusta Glitnis

þriðjudagur, desember 05, 2006

Obviously, you're not a golfer

Amazon púnktur kó púnktur jú kei er einn af uppáhaldsvefjum mínum. Í gærkvöld rann á mig kaupæði og fyrr en varði hafði ég keypt sjö bíómyndir og tvo hljómdiska.
Ég lét loks verða af því að versla Big Lebowski, sem er mitt uppáhald. Hann keypti ég í pakka með þremur öðrum myndum eftir Coen bræður sem eru hver annari betri.
Svo verður haldið glæpaþaramon um jólin því ég verslaði einnig Scarface, Goodfellas og Casino. Fyrir slikk!

Reyndar var allur gærdagurinn einn risa eyðslukastsdagur því við Maxí sáum svo sannarlega til þess að jólakötturinn kemur ekki við í Reykjahlíðinni næstu 10 jól.

fimmtudagur, nóvember 30, 2006

Fótboltabjánar

Þessa frétt fann ég í fréttasafni RÚV:

Búlgarinn Manchester United hefur unnið tveggja ára baráttu fyrir því að fá að heita þessu nafni. Fyrst fékk hann fornafni sínu breytt úr Marin í Manchester og eftir tveggja ára baráttu fyrir dómstólum fékk hann eftirnafninu breytt úr Zdravko í United. Hann er 38 ára, býr í smábænum Svisthov ásamt móður sinni og kettinum David Beckham.

Það er sko ekkert skrýtið að United skuli búa hjá mömmu sinni, 38 ára gamall.

Hvernig hljómar Þróttur Rafnsson?

mánudagur, nóvember 27, 2006

Ræktin í morgun

Underworld - Bigmouth
Beastie Boys - The Sounds of Science
Sonic Youth - Teenage Riot
Undertones - Teenage Kicks
Beach Boys - Good Vibrations
David Bowie - Diamond Dogs
Underworld - Rez
The Roots - Don't feel right
Beastie Boys - Get it together
Oasis - Cigarettes & Alcohol
The Black Keys - Set You Free
Kiss - Strutter
Slade - C'mon Feel the Noise
The Cure - Why can't I be You
Arcade Fire - Rebellion lies
Beach Boys - Darling

Ú je. Bráðum verð ég eins og Charles Atlas.

laugardagur, nóvember 18, 2006

Sá á lykt...

föstudagur, nóvember 17, 2006

Ræktin í morgun

Underworld - Bigmouth
Beastie Boys - The Sounds of Science
Sonic Youth - Teenage Riot
Undertones - Teenage Kicks
Beach Boys - Good Vibrations
David Bowie - Diamond Dogs
Underworld - Rez
The Roots - Don't feel right
Beastie Boys - Get it together
Oasis - Cigarettes & Alcohol
The Black Keys - Set You Free
Kiss - Strutter
Slade - C'mon Feel the Noise
The Cure - Why can't I be You

Ú je. Bráðum verð ég eins og Charles Atlas.

miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Tækniframfarir til framtíðar!

Árni Johnsen er eins og Síonistarnir sem sprengja saklaust fólk í tætlur. Allavega að því leyti að misgjörðir beggja eru bara "tæknileg mistök".

fimmtudagur, nóvember 02, 2006

Stóri bróðir til framtíðar!

Hver á að fylgjast með þeim sem fylgist með?

http://news.independent.co.uk/uk/crime/article1948209.ece

sunnudagur, október 29, 2006

Trompet til framtíðar!

Enn tekst Herb Alpert að koma mér í gott skap. Undarlegir þessir sunnudagsmorgnar.

Ég kemst í þvílíkt stuð. Ég lýsi eftir kommbakki frá íslensku gleðipinnasveitinni Casino! Eini diskurinn þeirra var frábær og þeir voru enn betri á böllum.

föstudagur, október 06, 2006

Kraftur til framtíðar!

Þegar Óli Grís heldur ræðu finnst mér stundum eins og hann sé alltaf að flytja sömu ræðuna, bara í mismunandi útsetningum. Í hverri einustu ræðu talar Grísinn um einhvern svakalegan kraft sem er í öllu og öllum alls staðar. Mér liggur við uppsölum í hvert einasta skipti sem bóndinn á Bessastöðum opnar munninn, mér fannst hann ferlegur áður en hann varð forseti og ekki batnar hann. Hann er svona eins og Campari, nema hvað hann batnar ekkert með árunum og er alltaf jafn vondur.

Þessi undarlegi kraftur er kominn í vinnu hjá Sjálfstæðismönnum. Nú auglýsir Guðlaugur Þór "Kraft til framtíðar". HLjómar vel, ekki satt? Þetta hljómar afar traustvekjani og flott, sennilega er þessi frasi afsprengi margra mánaða þrotlausrar vinnu einhverrar auglýsingastofu og ímyndarsérfræðinga. Ég óska samt eftir útskýringu á því hvað kraftur til framtíðar þýðir. Í þessum frasa er nefnilega ekkert innihald, en það skiptir sennilega ekki máli því hann hljómar vel og fer vel undir fermingarmyndinni af Guðlaugi á auglýsingaspjaldinu.

Ég fékk ógurlegan aulahroll um daginn þegar ég sá foringja flokkanna í asnalegu kapphlaupi í þætti hjá Hemma Gunn. Það var svo greinilegt að enginn þeirra vildi vera þarna, en fyrir kosningar verða menn að hórast fyrir fjölmiðlaathygli.

Svo sá ég þekktan Sjalla í fréttum í gær sem sagði nóg komið af stóriðju á Íslandi! Hefði viljað sjá hann segja þetta í fyrra. Eða hitteðfyrra. En nú eru kosningar...
Helvítis popúlistar.

miðvikudagur, október 04, 2006

Amazon women on the moon...

...var afskaplega fyndin mynd. Ég hef sjaldan hlegið eins mikið eins og yfir fyrsta atriði myndarinnar með Arsenio Hall. Hef ekki séð myndina í nærri fimmtán ár og hugsa að ég myndi verða fyrir vonbrigðum ef ég færi að glápa á hana núna. Sumar myndir endast illa, sérstaklega gamanmyndir. Einhvern tíma ætlaði ég að sýna ungum frænda mínum mynd sem heldur betur væri hægt að hlæja yfir. Þegar ég var á hans aldri sá ég Innerspace með Martin Short og fékk sinadrætti vegna hláturskrampa. Því ætlaði ég að vera skemmtilegi frændinn og leigði myndina fyrir okkur. En hún var ekki lengur fyndin. Fjarri því. Fjórtán árum áður meig ég í mig úr hlátri við það eitt að horfa á Martin Short. Ég skildi eiginlega ekki hvað hafði gerst, fór að afsaka mig og Martin og frændinn vorkenndi mér eiginlega. Því ætla ég að gera mér þann greiða að horfa ekki aftur á Amazon women on the moon.

Talandi um Amazon.

Er búinn að versla nokkrar plötur á netinu sem ég næ í þegar ég fer til Skotlands síðar í mánuðinum. Nýja TV on the Radio fer í afmælispakkann minn frá mér sjálfum, einnig Tropicalia: A Brazilian Revolution in Sound, sem er safnplata með brasilískri tónlist frá sjöunda áratugnum, sambland af bossa nova og rock'n'roll!
Svo langar mig í nýju plötuna með Yo La Tengo, Ali Farka Toure og nýju Killers Plötuna. Svo langar mig líka í meiri jöfnuð, minni mengun og frið á jörð.

Do Re Mi

Er kominn með júróvisjónlag Dana frá 1983 á heilann. Einhver bjáni á Rás 1 þurfti að spila þetta lag áðan og kabúmm - límt við heilann. Þetta er um það bil leiðinlegasta lag sem ég hef heyrt á ævinni. Hvernig er hægt að búa til svona mikil leiðindi?
Lagið heitir Do Re Mi og hvernig haldið þið að viðlagið sé? Jú: Do, Re, Mi, Fa, So, La, Ti, Do endurtekið í sífellu.

þriðjudagur, október 03, 2006

Mæli eindregið gegn:


Pizza Hut.


Á Pizza Hut er hægt að fá ágætar pizzur, en maður er hafður að fífli við kassann þar sem eigendur staðarins rukka fyrir bökurnar líkt og þær væru löðrandi í kókaíni.

Eldsmiðjunni.


Frábærar pizzur, þroskaheft starfsfólk. Ef þið pantið heimsenda pizzu frá Eldsmiðjunni og hún er ekki kominn eftir tvo klukkutíma, ekki hringja til að spyrja hvort verið sé að leita að pepperonidýrinu.

Mæli ekki með:

Panic! At The Disco - A Fever You Can't Sweat Out
Þessi plata náði mér amk ekki, kannski að það komi með frekari hlustun, en hljómar of mikið eins og Blink fokkings 182 í mínum eyrum.

Mæli með:

The Fratellis - Costello Music.
Þrír töffarar frá Glasgow sem spila eðal indí- gítarrokk. Þeir hafa allir tekið upp sama eftirnafnið, þ.e. Fratelli, "a la Ramones".

Neil Young - Living With War.

Gamli gefur skít í Bush kúreka og félaga hans í DC. Mjög góð plata og textarnir hitta í mark. Let's Impeach the President er toppurinn.

Belle & Sebastian - The Life Pursuit.
Frábær plata, góðir textar, er svekktur yfir að hafa ekki séð þau í sumar.

Wolfmother - Wolfmother.
Þriggja manna band frá Ástralíu. Þeir kunna sko að rokka, eru greinilega undir áhrifum frá Deep Purple, Uriah Heap og Black Sabbath. Framúrskarandi rokk upplagt til flösuþeytinga.

The Weather man
Nicolas Cage leikur veðurfréttamann sem er ógurlegur lúser. Kjánahrollur og krampahlátur.

Transamerica
Ein af aðþrengdu eiginkonunum leikur gaur sem er að skipta um kyn, allt klárt nema það á eftir að klippa á spottann þegar...

fimmtudagur, september 28, 2006

The Búbbs

Um það bil ófyndnasta sjónvarpsefni EVER.

þriðjudagur, september 26, 2006

Trompet eru töff!

Ég er kominn með æði fyrir Herb Alpert. Hebbi og hans ómótstæðilega Tijuana Brass band hljómar ótt og títt í mín eyru þessa dagana.

Einu sinni hefði ég kallað þetta gelda lyftutónlist, en nú finnst mér þetta vera hallærislega flott.

mánudagur, september 25, 2006

Molamolar...

Sykurmolarnir með kommbakk! Það er nú með því óvæntara sem ég hef heyrt lengi.
Ég sá Kuklið í Hlaðvarpanum árið 1987, fannst þau frábær og fílaði Sykurmolana alveg frá byrjun. Sumarið 1988 hlustaði ég daginn út og inn á Life's Too Good með Sjúgarkjúbs. Ég átti ekki plötuna þá en hún var til heima hjá Hjörra. Við Hjörri eyddum þessu sumri í að þykjast reyta arfa og þykjast slá gras í unglingavinnu í Laugardalsgarðinum, og eftir "vinnu" spiluðum við og hlustuðum á plötur heima hjá Hjörra. Skemmtileg tilviljun að tónleikarnir verða á afmælisdegi Hjörvars.
Eina skiptið sem ég sá Sykurmolana var í Laugardalshöll, sennilega 1987. Mig minnir að það hafi verið á einhvers konar tónlistarhátið og ég held að þetta hafi verið fyrstu opinberu tónleikar Molanna. Þetta getur líka verið algjör vitleysa í mér, það eru orðin nærri 20 ár síðan, ég farin að fá grá hár og þarf orðið að raka á mér eyrun, svo það er ekkert skrýtið þó minnið sé farið að klikka örlítið.

Að kvöldi 30. desember 1995 sátum við Árni, Ibbi, Dóri og Stjáni á hinu frábæra kaffihúsi Café Au Lait þegar Life's Too Good var sett á fóninn. Þá hafði ég ekki hlustað á hana í nokkuð mörg ár. Platan sló auðvitað í gegn á okkar borði, gerði lundina léttari og bjórinn betri og sumblið varð eftirminnilegt.

Ég hlustaði í fyrsta skipti á Life's Too Good í langan tíma nú um helgina. Hún var betri en mig minnti.

-----

Ég verð á Hampden Park í Glasgow þann 21. október að horfa á leik Celtic og Motherwell. Újeee. Eftir leik hitti ég leikmenn liðanna í einhverju sem heitir Players Lounge.

-----

Það leið ekki sólarhringur frá því að ég spáði því að Atli myndi hætta með Þrótt þar til hann var farinn. Spámannlega vaxinn?

laugardagur, september 23, 2006

Dolli

No Regrets! Nýji geisladiskurinn með hjartaknúsaranum Adolfi Hitler.

Fóstbræður hafa elst vel. Þeir eru það fyndnasta sem sem sést hefur í íslensku sjónvarpi fyrr og síðar.

Lag á heila dagsins:

Ebony and Ivory með Adolfi Hitler.

mánudagur, desember 08, 2003

HELVÍTIS!!!!!!!!!!
Helvítis arðsemisgreining.

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

Loksins gefst rúm til þess að horfa á fótbolta. Prófin að baki (í bili amk!!) og langþráð frí frá frá lestri og verkefnavinnu vel þegið. Vildi bara að ég væri með einn kaldann yfir leiknum.
Stórafmæli síðustu helgi. Magnað að þurfa að fara á fullt í að plana þrítugsafmælið mínútu eftir síðasta próf. Afmælisveislan var nokkuð vel heppnuð. Það fóru 90 lítrar af bjór og 10 lítrar af bollu í mannskapinn sem varð til þess að lundin á flestum var létt. Fékk hvorki meira né minna en eitt stykki harmonikku í gjöf! Nú verður gítarnum parkerað og nikkan masteruð.
Lifi Þróttur!

sunnudagur, nóvember 16, 2003

Ég er ekki enn búinn að ná mér af áfallinu sem fylgdi í kjölfar falls Þróttar úr úrvalsdeildinni í sumar. Þetta var eins og endurtekin martröð. Það er eins og þetta fallega lið sé í álögum.

fimmtudagur, nóvember 13, 2003

Jæja, þetta var kannski ekki alslæmt í morgun. Steypubíllinn var svoldið lengi á staðinn en eftir að hann var kominn á svæðið komst ég á smá ról. Það sem maður getur bullað í svona félagsfræðilegum fögum. Þrjú próf að baki, þrjú eftir. Reikningshald og bókhald á mánudaginn. Úff.

miðvikudagur, nóvember 12, 2003

Ég er ekki prófa maður. Próf nr. þrjú á morgun. Búinn að rembast í allan dag frá klukkan níu í morgun við að koma mér í prófgírinn, en ég er alveg lost. Einbeitingin er ekki í lagi í dag. Eftir nokkurra mínútna lestur fer ég að hugsa um eitthvað allt annað en lærdóminn. Það er alltaf sama helvítis sagan.

þriðjudagur, nóvember 04, 2003

Vondu fréttir síðasta mánaðar voru án nokkurs vafa fréttin af ótímabæru andláti Elliot Smith. Sá kunni að gera góða, tregablandna þjóðlaga/rokk tónlist. Snillingur.

mánudagur, nóvember 03, 2003

Reikningshald & Bókhald er ekki mitt malta. Þvílíkt krapp.

þriðjudagur, október 28, 2003

Hvar er smeðjulega kosningabrosið hans Halldórs Ásgrímssonar sem fór svo mikið fyrir í vor? Ekki það að ég sakni þess. Veit ekki hvort er þolanlegra, kosningabrosið eða byttulegi fýlusvipurinn. Maður þarf örugglega að bíða í þrjú og hálft ár til þess að sjá manninn brosa aftur.

mánudagur, október 27, 2003

Ég hef ákveðið að stofna þrýstihóp sem á að beita sér fyrir því að ofurbomban og tónskáldið Leoncie fái sömu meðferð og Gunnar Þórðarson og Megas. Ég krefst þess að þessi framúrskarandi listamaður verði settur á listamannalaun. Lög eins og Victor og Sexy Loverboy hafa fyrir löngu tekið sér bólstað í hjörtum landans. Með nýjasta afkvæmi sínu, meistarastykkinu Radio Rapist - Wrestler sannar hún í eitt skipti fyrir öll að hún er í sérflokki.
Lesið textann og sannfærist. Ást á pöbbnum, gjörið svo vel...

Hún hitti hann á pöbb eitt kvöld
á Country pub í Reykjavík
Hún starði á hann mjög ákveðinn
Hann glápti á móti dauðadrukkinn
Hún kinkaði kolli og blikkaði hann
Hann var dáleiddur af allann Vodkann
Hann fór til hennar og sagði
hvar hann var frá
Hún sagði "Veistu hvað?"
Við höfum sameiginlegt
því við komum bæði frá Kópavogi

Ást á pöbbnum, þau féllust í ást á pöbbnum
Nú grætur hann - Hann átti að kynnast henni fyrst

Hún eyðir öllu hans fé. Hann sparar ekki neitt
Hann vildi kaupa hús, en hann á varla fyrir öl krús
Til að gera allt verra hann missti vinnuna
í staðinn að vinna fór hann norður með henni
Hún dró hann til Akureyrar
Þau dönsuðu línudans fram til klukkan 3
Syngjandi.....við komum bæði frá Kópavogi.



Vááááááááááá, þvílík smíð. Algjört æði
Hey, lifi Þróttur!!