föstudagur, október 06, 2006

Kraftur til framtíðar!

Þegar Óli Grís heldur ræðu finnst mér stundum eins og hann sé alltaf að flytja sömu ræðuna, bara í mismunandi útsetningum. Í hverri einustu ræðu talar Grísinn um einhvern svakalegan kraft sem er í öllu og öllum alls staðar. Mér liggur við uppsölum í hvert einasta skipti sem bóndinn á Bessastöðum opnar munninn, mér fannst hann ferlegur áður en hann varð forseti og ekki batnar hann. Hann er svona eins og Campari, nema hvað hann batnar ekkert með árunum og er alltaf jafn vondur.

Þessi undarlegi kraftur er kominn í vinnu hjá Sjálfstæðismönnum. Nú auglýsir Guðlaugur Þór "Kraft til framtíðar". HLjómar vel, ekki satt? Þetta hljómar afar traustvekjani og flott, sennilega er þessi frasi afsprengi margra mánaða þrotlausrar vinnu einhverrar auglýsingastofu og ímyndarsérfræðinga. Ég óska samt eftir útskýringu á því hvað kraftur til framtíðar þýðir. Í þessum frasa er nefnilega ekkert innihald, en það skiptir sennilega ekki máli því hann hljómar vel og fer vel undir fermingarmyndinni af Guðlaugi á auglýsingaspjaldinu.

Ég fékk ógurlegan aulahroll um daginn þegar ég sá foringja flokkanna í asnalegu kapphlaupi í þætti hjá Hemma Gunn. Það var svo greinilegt að enginn þeirra vildi vera þarna, en fyrir kosningar verða menn að hórast fyrir fjölmiðlaathygli.

Svo sá ég þekktan Sjalla í fréttum í gær sem sagði nóg komið af stóriðju á Íslandi! Hefði viljað sjá hann segja þetta í fyrra. Eða hitteðfyrra. En nú eru kosningar...
Helvítis popúlistar.

2 Blaður:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Campari skánar þó með tímanum, er ekki alvont alla tíð....

Kveðja,
Silli

03:29  
Anonymous maggy sagði...

Ég þekki nú forseta voran og ekki er hann skemmtlegri þegar hann mætir með fánana á limmanum í klippingu. Karlanginn. Magnea

09:49  

Sendu inn athugasemd

<< Home