miðvikudagur, október 04, 2006

Do Re Mi

Er kominn með júróvisjónlag Dana frá 1983 á heilann. Einhver bjáni á Rás 1 þurfti að spila þetta lag áðan og kabúmm - límt við heilann. Þetta er um það bil leiðinlegasta lag sem ég hef heyrt á ævinni. Hvernig er hægt að búa til svona mikil leiðindi?
Lagið heitir Do Re Mi og hvernig haldið þið að viðlagið sé? Jú: Do, Re, Mi, Fa, So, La, Ti, Do endurtekið í sífellu.